Frábær sýningahelgi
30.8.2010
Áttum enn og aftur æðislega helgi í sýningahringnum, en úrslit voru eftirfarandi
Laugardagur
Evening Star Dinastija "Anya" Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða and BIS-4 Puppy
Himna Hrafna Exl and Best bitch-2
Gullgæfu Millionaire "Ewok" Best hvolpur tegundar 4-6 mánaða.
Sunnudagur.
Pipar og salt
Svartskeggs Jewel Salt Crystal BOB, CAC, CACIB og BIG-3!!
Silfurskugga Griffin P.S Flying High BOS, CAC, CACIB og núna ISCH.
Svartskeggs Levi Pepper Guy Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða, Besti hvolpur sýningar-2
Svart/silfur
Svartskeggs Handsome Silver Boy, CAC, R-CACIB
White
ISCH Silfurskugga Capone White Boss, Exl, Besti rakki-2
Made In Iceland White Xmas Angel, Besti hvolpur 6-9 mánaða.
Innilegt þakklæti til allra vina sem áttu þátt í að gera okkur þetta kleyft.
Volcano gotið 8 vikna
5.7.2010
Í dag varð Volcano gotið okkar 8.vikna og í morgun fórum við með þau öll í hvolpaskoðun til stelpnana hjá Dagfinni Dýralækni. Þau eru öll fullkomlega heilbrigð og núna ormahreinsuð, bólusett og örmerkt. Þau fengu hrós frá dýralækninum fyrir hversu dugleg þau öll voru, óhrædd, opin og glöð. Á næstu dögum fara hvolparnir að tínast á ný heimili, en ennþá eigum við 2 rakka ólofaða sem leita af rétta framtíðarheimilinu, einn hvítan og einn svartan. Nánari upplýsingar undir Hvolpar.
Heimsýning.
3.7.2010
Á hverju ári er haldin heimsýning í einhverju FCI-landi, í ár var hún haldin í Danmörku og við létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta enda samband við ræktendur erlendis nauðsyn til að betrumbæta okkar ræktun og fylgjast með nýjungum í tegundinni. Við fengum nýjustu Griffon viðbótina okkar afhenda þar og notuðum tækifærið og sýndum hana í hvolpaflokk, okkur til mikillar ánægju varð hún besti hvolpur tegundar, en áður var hún sýnd í Litháen og varð þar fimmti besti hvolpur sýningar og ekki hægt að kvarta yfir árangrinum hennar á hennar stuttu ævi.
Hvolpar
3.7.2010
Núna styttist í að hvolpaskottinn okkar fari í örmerkingu og bólusetningu og fari að tínast á ný heimili, við tókum nokkrar myndir af þeim um helgina þegar þeir voru í könnunarleiðangri í garðinum. Það var heilmikið fjör hjá þeim að moka í moldinni, naga grasið og þefa af blómunum og voru þau uppgefin eftir á. Ennþá eigum við yndislega hvolpa ólofaða sem leita af rétta heimilinu, æðisleg skapgerð og góð bygging. Nýjustu myndirnar er hægt að skoða í gallerýinu okkar undir Volcano got - 7 vikna
Æðisleg sýning.
6.6.2010
Í gær var sýning á vegum HRFI og að þessu sinni fengum við Torbjörn Skaar frá Svíþjóð. Ekki annað hægt að segja en sigurgöngu Svartskeggshunda hafi haldið áfram en við ræktuðum Besta hund tegundar í Svart/silfur og Pipar&salt litnum, plús að Besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða í svart/silfur, Pipar&salt og hvítum voru hvolpar frá okkur. Við þökkum að sjálfsögðu þeirra yndislegu eigendum fyrir að koma með þá á sýningar, án þeirra hefði þetta auðvitað ekki tekist!
Svartskeggs Handsome Silver Boy, 1.sæti, meistaraefni, Besti hundur tegundar í Svart/silfur og Ísl.meistarastig.
Svartskeggs Jewel Salt Crystal, 1.sæti, meistaraefni, Besti hundur tegundar í Pipar&salt og Ísl.meistarastig.
Svartskeggs Levi Pepper Guy. Besti hvolpur í pipar&salt og heiðursverðlaun.
Svartskeggs Lolita Silver Queen Besti hvolpur í svart/silfur og heiðursverðlaun.
Made In Iceland White Xmas Angel, Besti hvolpur í hvítum og heiðursverðlaun.
Nýtt got
12.5.2010
Erum með nýtt spennandi hvítt og svart got undan innfluttum foreldrum, Madonna Rey Prag "Fönn" og Silfurskugga Griffin P/S Flying High "Griffin" eru stoltir foreldrar. Það komu hvorki meira en minna 10 hvolpar undan þessum yndislegu hundum og það er auðvitað alltof mikið fyrir litla dvergschnauzertík, svo hún endaði í keisara og legnámi í framhaldi af því en er öll að braggast, þetta verður því fyrsta og eina gotið hennar hér á landi. Átta hvolpar lifðu af, þar af 5 hvítir og 3 svartir og hver öðru krúttlegri að sjálfsögðu. Nánari upplýsingar, myndir og ættbækur undir Hvolpar.
Ýmsar fréttir.
30.3.2010
Það er ýmislegt búið að gerast hjá okkur á síðustu vikum, allir hvolparnir eru komnir á ný heimili og gengur vel hjá flestum. Schnauzerinn er auðvitað þrjóskir smáhundar og því gefið að einhverjir lendi í smávegis vandræðum með uppeldið, en það er nú venjulega eitthvað sem létt að leysa með aðstoð hvolpaskóla. Hún Lísa (Svartskeggs Jewel Salt Crystal) var einmitt að ljúka námskeiði hjá Ástu Dóru með eiganda sínum og gerði sig lítið fyrir og fékk gullpening eftir námskeiðið en gullið er gefið þeim hvolpi sem sýnir bestu framför á námskeiðinu. Eins urðu smávegis breytingar hjá okkur með eldri hundana, Scedir Elinora Duse "París" var seld úr landi og býr núna hjá yndislegri fjölskyldu í Danmörku, París hefur gefið okkur tvö stór got og skilað sínu í ræktun á Íslandi og það stóð til að taka hana úr sambandi en þetta var í raun bara ennþá betri lausn. Eins höfum við komið Dynamic Dolce Vita Of Roxy´s Pride "Donnu" á fóðurheimili, hún er komin í sýningapásu enda komin með þá titla sem hægt er að fá hér á landi og nýtur sín sem einkabarn á nýju heimili.
Frábær sýningahelgi
2.3.2010
Áttum frábæra sýningahelgi á alþjóðlegri sýningu HRFI um helgina.
Laugardag
Risaschnauzer svartur:
ISCH Svartskeggs Black Pearl, BOB, CACIB og er núna Alþjóðlegur meistari.
Svartskeggs Absolut Power BOS, CAC, CACIB og er núna ISsCh
Pipar og salt dvergschnauzer:
Svartskeggs Jewel Salt Crystal BOB,CAC (of ung fyrir CACIB).
ISCH Isabella frá Ólafsvöllum Besta tík-2 með CACIB.
Silfurskugga Griffin Ps Flying High BOS,CAC,CACIB
Hvítur dvergschnauzer:
ISCH SUCH Dynamic Dolce Vita Of Roxy´s Pride BOS, CACIB núna Alþjóðlegur meistari.
Silfurskugga Capone White Boss BOB, CAC, CACIB núna ISCH
Madonna Rey Prag CAC og R-CACIB.
Svart/silfur dvergschnauzer
Svartskeggs Happy Silver Girl 2.besta tík í sínum flokk með Exl.
Sunnudag
Himna Hrafna Besti hvolpur tegundar.
Hvolpastuð
9.2.2010
Það er búið að vera mikið að gerast í hvolpastandi hjá okkur, þann 11.desember sl. eignaðist París og Griffin 7 hvolpa saman, fengum 5 svart/silfur og 2 pipar/salt hvolpa og ákváðum við að eiga annan pipar/salt strákinn sjálf og erum við búin að lofa öllum öðrum á frábær heimili, fyrir utan einn strák sem breyttust forsendur með og því leitar hann ennþá af rétta heimilinu. Hin eru flest komin á sín heimili, einn rakki fór til Eyja en rest verða hérna á höfuðborgasvæðinu og höfum við fengið fréttir af þeim öllum og gengur súper vel allstaðar.
Svo þann 19.des þá fæddist fyrsta hvíta gotið líka fjórar tíkur og einn rakki, það var ofsalega gaman að taka á móti þessum pínulitlu ísbjarnaungum og talsvert öðruvísi upplifun, stoltir foreldrar af því goti eru Donna og Boss. Við ákváðum að halda eftir einni tík fyrir okkur sjálf úr þessu goti og það hefur verið virkilega erfið ákvörðun hverja skuli halda í, því þau eru öll hvor öðru betri. Við eigum tvær tíkur ólofaðar úr því goti, sem verða tilbúnar til afhendingar um helgina. Þeir hvolpar munu bera ræktunarnafnið Made In Iceland.
Það er því ekki annað hægt að segja en það hafi verið mikil gleði á okkar heimili það sem komið er af þessu ári og núna þegar fækka fer í hópnum myndast alltaf visst tómarúm. En við reiknum nú með að sjá eitthvað af þessum hvolpum á sýningum og eins í Svartskeggshittingum á komandi árum.
Nýjar myndir
6.1.2010
Eru komnar nýjar myndir í galleryið af báðum gotunum okkar og eins jólagöngunni okkar sem var vel heppnuð þrátt fyrir gríðalegt frost og smá vind.